Skólabyrjun grunnskóladeildar
Skólabyrjun
Skólasetning í grunnskóladeild Ártúnsskóla verður mánudaginn 24. ágúst kl. 10:00 á sal skólans fyrir nemendur og forsjáraðila í 2. - 7. bekk. Nemendur fara inn í stofur með umsjónarkennurum og á meðan er í boði fræðsla á sal fyrir foreldra um svefn grunnskólabarna frá Betri svefn.
Viðtöl fyrir nemendur og forsjáraðila í verðandi 1. bekk verða föstudaginn 21. ágúst og mánudaginn 24. ágúst. Tímasetningar viðtala verða boðaðar símleiðis í vikunni.