Nám og kennsla

Teiknuð mynd af börnum að lesa og skrifa við borð í skólastofu.

Grunnskólar Reykjavíkurborgar vinna eftir aðalnámsskrá grunnskóla með Menntastefnu Reykjavíkurborgar til hliðsjónar. Meginmarkmið stefnunnar er að öll börn vaxi, dafni og uni sér saman í lýðræðislegu samfélagi sem einkennist af mannréttindum og virðingu fyrir fjölbreytileika mannlífs.

Í kraftmiklu skóla- og frístundastarfi öðlast börn og unglingar menntun og reynslu til að láta drauma sína rætast og hafa jákvæð áhrif á umhverfi og samfélag.

Mentor

Mentor er upplýsingakerfi fyrir nemendur, foreldra og starfsfólk skólans. Forsjáraðilar og nemendur fá aðgangsorð að Mentor. Á fjölskyldusíðunni sjá forsjáraðilar stundatöflur barna sinna, heimavinnu, námsmat, skólasókn og fleira.

Kennsluáætlanir

Í kennsluáætlunum er lýst inntaki námsins og námsmati sem gefa kennurum, nemendum og foreldrum yfirsýn um það sem fengist er við í kennslunni.

 

Námsmat

Í Ártúnsskóla er lögð áhersla á fjölbreytt námsmat sem er ætlað það hlutverk að vera leiðbeinandi fyrir nám og kennslu í margbreytilegum nemendahópi. 

Megintilgangur námsmats er að fylgjast með framförum nemenda og til að meta hvort nemandi hafi náð almennum hæfniviðmiðum og lykilhæfniviðmiðum aðalnámskrár ásamt því að vera námshvetjandi. 

 

Kennsluhættir

Í skólastarfinu er lögð áhersla á fjölbreytni í vinnubrögðum og kennsluaðferðum. Kennsluaðferðir og vinnubrögð taka tillit til aldurs, þroska og getu nemenda með leiðsagnarnám að leiðarljósi og kennslan miðar að því að nemendur nái þeim markmiðum sem stefnt er að. 

Viðmið um skólasókn

Mikil áhersla er lögð á stundvísi nemenda í skólanum. Öll börn og ungmenni á aldrinum 6 til 16 ára eru skólaskyld og bera foreldrar/forsjáraðilar ábyrgð á því að börnin innritist í grunnskóla, sæki skólann og stundi þar nám.

Ef misbrestur verður á skólasókn ber foreldrum/forsjáraðilum og skólanum að bregðast við. Til þess að þau viðbrögð verði sem árangursríkust hafa grunnskólarnir í Reykjavík sett sér samræmd viðmið og reglur sem þeir vinna eftir.